Saga Tótem Tótem á rætur að rekja aftur til ársins 1963 þegar Torfi Tómasson fór að flytja inn Speedo sundföt. Torfi var á þeim árum sundþjálfari, nokkru síðar landsliðsþjálfari, og krakkana sem hann þjálfaði vantaði almennileg sundföt. Síðan þá hefur Speedo merkið verið kjölfestan í fyrirtækinu. Vorið 2003 valdi Puma íþróttavörumerkið okkur sem sína umboðs- og dreifingaraðila á Íslandi. Var það bæði áskorun og fengur fyrir Tótem. Á síðari árum hefur Puma tekið sér sæti sem eitt af stærstu íþróttamerkjunum á Íslandi. |


